 |
| Baldur og Herjólfur við bryggju i Þorlákshöfn mynd þorgeir Baldursson 2026 |
Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðs Íslands.
Fyrirkomulagið verður við lýði meðan unnið er að viðgerð á einni vél Herjólfs sem bilaði í apríl. Gert er ráð fyrir að viðgerð á vélinni ljúki upp úr miðjum júní.
Þjónusta við samfélagið tryggð
Ferjan Særún mun sinna siglingum til Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs og tryggja þjónustu við samfélagið þar.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti þessar breytingar á íbúafundi sem Vegagerðin hélt í Vestmannaeyjum síðdegis í dag.
Vegna erfiðra aðstæðna og óhagstæðs veðurfars hefur lítið mátt út af bregða að siglingaáætlun Herjólfs raskist. Þegar Herjólfur siglir aðeins á einni vél getur skipið illa siglt til Landeyjahafnar ef ölduhæð fer yfir 2 m og/eða ef vindur er yfir 12 m/s en það er ekki óalgengt á þessum árstíma.